 
- 
Hvað er Verifone?Verifone er leiðandi fyrirtæki í greiðslulausnum, bæði á Íslandi og um allan heim. Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval af posum, hugbúnaði og þjónustu fyrir fyrirtæki af öllum stærðum. 
- 
Hvaða tegundir af greiðslulausnum býður Verifone upp á?Við bjóðum upp á fjölbreyttar lausnir, þar á meðal posa fyrir verslanir, veitingastaði og aðra þjónustuaðila, greiðslulausnir fyrir netverslanir, snertilausar greiðslur, greiðslulausnir fyrir sjálfsala og margt fleira. 
- 
Hvernig get ég pantað greiðslulausnir og posa hjá Verifone?Þú getur pantað Verifone posa og aðrar greiðslulausnir með því að hafa samband við söludeild okkar í síma 544-5060 eða með því að senda okkur skilaboð. 
- 
Hvar get ég fengið þjónustu fyrir Verifone tækið mitt?Ef þú þarft þjónustu fyrir Verifone tækið þitt getur þú haft samband við þjónustuver okkar í síma 544-5060 eða sent okkur skilaboð. Við bendum einnig á þjónustusíðuna okkar. 
- 
Hvernig get ég lært meira um Verifone og lausnirnar sem í boði eru?Vefsíðan okkar verifone.is, inniheldur ítarlegar upplýsingar um fyrirtækið okkar, þjónustuframboð og lausnir. Þú getur einnig haft samband við okkur beint ef þú hefur einhverjar spurningar. 
- 
Eigið þið lausn sem sameinar sölustaði mína á einn stað?Já, við bjóðum upp á lausnir sem hjálpa kaupmönnum, óháð starfsgrein, að skapa alhliða viðskiptaupplifun á hverjum degi. Táknræn auðkenning er grunnurinn að öllum alhliða viðskiptakerfum og gerir kaupmönnum kleift að bera kennsl á viðskiptavini sína óháð því hvar þeir velja að versla við fyrirtækið þitt. Verifone Central, öflugur skýrsluvefur okkar, einfaldar greiningu gagna með því að safna saman öllum greiðslugögnum þínum í eitt kerfi. Þessar upplýsingar eru síðan settar fram í ítarlegum skýrslum. 
 
- 
Get ég tekið við Apple Pay og Google Pay með Verifone posum og greiðslulausnum?Já, flestar Verifone greiðslulausnir styðja Apple Pay og Google Pay, sem gerir viðskiptavinum þínum kleift að greiða á fljótlegan og þægilegan hátt. 
- 
Hvað kostar að nota Verifone greiðslulausnir?Verðlagning fer eftir þörfum þínum og tegund viðskipta. Kíktu á verðskrána okkar eða hafðu samband við söludeildina okkar til að fá nánari upplýsingar og tilboð. 
- 
Er hægt að tengja Verifone posa við afgreiðslu- og bókhaldskerfið mitt?Já, Verifone posarnir eru samhæfir flestum helstu afgreiðslu- og bókhaldskerfum t.a.m. DK Hugbúnaður, Regla, LS Retail, SalesCloud og fleiri. Þetta gerir þér kleift að halda utan um allar færslur á einum stað. 
- 
Hvaða öryggisstaðla uppfylla Verifone greiðslulausnir?Verifone leggur mikla áherslu á öryggi og uppfyllir ströngustu öryggisstaðla, þar á meðal PCI DSS. 
 
- 
Hvar finn ég API skjölun fyrir Verifone?API skjölun fyrir Verifone er að finna á þróunarvef okkar verifone.cloud. 
- 
Hvernig fæ ég aðgang að Verifone sandkassaumhverfi?Sandkassaumhverfi gerir þér kleift að prófa samþættingar við Verifone API-in án þess að hafa áhrif á raunveruleg gögn. Þú getur sótt um aðgang að sandkassaumhverfi á þróunarvefnum okkar. 
- 
Hvernig tryggir Verifone öryggi gagna í gegnum API-in?Verifone leggur mikla áherslu á öryggi gagna og notar ýmsar öryggisráðstafanir til að vernda gögn sem send eru í gegnum API-in. Þar á meðal eru dulkóðun, auðkenning og heimildarstýring. 
 
- 
Hvar er skrifstofa Verifone á Íslandi?Skrifstofan okkar er staðsett að Hlíðasmára 12, 201 Kópavogi. 
- 
Hver er opnunartími skrifstofunnar?Skrifstofan er opin frá 9:00 til 17:00 alla virka daga. 
- 
Get ég sótt Verifone posa á skrifstofuna?Já, þú getur sótt Verifone posa á skrifstofuna okkar á opnunartíma. 
- 
Hvaða þjónustu býður skrifstofan upp á?Starfsfólk okkar á Íslandi býður upp á fjölbreytta þjónustu, þar á meðal ráðgjöf um greiðslulausnir, leigu á posum, tæknilega aðstoð og þjónustu á leigutímabilinu. 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
